OKKAR BÚNAÐUR
Við komum með stúdíóið til þín.
Þú einbeitir þér að samtalinu, viðtalinu eða þættinum. Við komum til þín og sjáum um upptökuna. Síðan klippum við, vinnum hljóðið og göngum frá þættinum samkvæmt samkomulagi. Þú færð fullunninn þátt, tilbúinn fyrir hlustendur.
Þetta hentar fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum sem vilja taka upp í eigin umhverfi. Þú þarft ekki að eiga upptökubúnað eða kunna að stjórna honum. Við förum yfir framkvæmdina með þér áður en upptakan hefst.
Upptakan fer fram hjá þér
Við förum yfir aðstöðuna með þér áður en upptakan er bókuð. Fundarherbergi, skrifstofa eða annað rólegt rými getur hentað vel. Við metum saman hvort rýmið henti og hvað þarf að undirbúa fyrir upptökuna.
Við komum með hljóðnema, heyrnartól og upptökubúnað, setjum upp og prófum hljóðið áður en við byrjum. Á meðan upptökunni stendur höldum við utan um tæknina.
Svona gengur þetta fyrir sig
- Þú segir okkur frá verkefninu. Hvað á að taka upp, hvar og hverjir taka þátt?
- Við undirbúum upptökuna saman. Förum yfir aðstöðu, þátttakendur og fyrirhugaða lengd upptökunnar. Síðan samræmum við tímasetningu, umfang vinnslunnar og afhendingu.
- Við komum og tökum upp. Setjum búnaðinn upp, prófum hljóðið og höldum utan um upptökuna.
- Við göngum frá þættinum. Klippum og vinnum hljóðið samkvæmt samkomulagi. Þú færð þáttinn til yfirferðar áður en við göngum frá lokaútgáfunni, tilbúinni til birtingar.
Hvað þarft þú að undirbúa?
Hugsaðu um tilgang þáttarins, þátttakendur og helstu umræðuefni. Þú þarft ekki að koma með fullskrifað handrit, en skýr hugmynd að samtalinu hjálpar okkur að undirbúa upptökuna.
Ef þú ert óviss um aðstöðuna eða framkvæmdina förum við yfir það með þér áður en við mætum.
Segðu okkur frá hugmyndinni þinni
Sendu okkur línu á hlustadu@hlustadu.is. Segðu okkur hvað þú vilt taka upp, hvar og hversu margir taka þátt. Ertu að hugsa um einn þátt eða reglulegar upptökur? Þú þarft ekki að vera búinn að ákveða allt — við tökum næstu skref með þér.
Segðu okkur frá hugmyndinni þinni ↗