Valmynd ☰

Auglýsingar, innlestur og önnur hljóðvinnsla hjá hlustaðu.

Láttu skilaboðin heyrast.

Vantar þig rödd í auglýsingu, innlestur fyrir myndband eða betra hljóð í upptöku? Þú kemur með hugmyndina, textann eða upptökuna. Við hjálpum þér að móta efnið og sjáum um hljóðið og fráganginn.

Ræðum hljóðverkefnið þitt

Hljóðauglýsingar.

Góð hljóðauglýsing þarf skýr skilaboð, rétta rödd og takt sem heldur athyglinni. Við getum hjálpað með hugmyndina og textann, upptöku, tónlist og hljóðvinnslu — eða tekið við efni sem þú ert þegar með og gengið frá því.

Hvort sem auglýsingin er ætluð í útvarp, hlaðvarp eða með myndbandi, þá miðum við vinnsluna við það hvar og hvernig hún verður notuð.

Innlestur.

Vantar þig innlestur fyrir auglýsingu, kynningarmyndband eða annað efni? Við finnum með þér hvernig rödd og lestur henta verkefninu og sjáum um upptöku, hljóðvinnslu og frágang samkvæmt samkomulagi.

Að baki hlustaðu. er áratuga reynsla Ásgeirs Páls af útvarpi, innlestri og hljóðvinnslu. Ef þú vilt fá hann til að lesa efnið ræðum við það sérstaklega við þig.

Hljóðvinnsla.

Ertu með tilbúinn lestur, viðtal eða hljóð fyrir myndband? Við klippum efnið, jöfnum hljóðstyrk og vinnum röddina svo hún verði skýrari og þægilegri í hlustun. Við getum líka dregið úr suði og öðrum truflunum eftir því sem upptakan leyfir.

Ef upptakan er erfið metum við hana fyrst og segjum þér hvað raunhæft er að bæta áður en við ákveðum umfang vinnunnar.

Stef og hljóðmynd.

Tónlist, stef og hljóðáhrif gefa efninu sérkenni og tengja það saman. Við mótum hljóðmynd sem styður röddina og skilaboðin, til dæmis upphafsstef, stutta hljóðbrú eða áhrif fyrir auglýsingu. Stundum þarf lítið til; hljóðið á að þjóna efninu.

Þú getur komið með hugmynd, texta eða tilbúna upptöku.

Segðu okkur hvað þú vilt gera, hvar efnið verður notað og hvenær þú þarft það tilbúið. Þú mátt senda texta, upptöku eða dæmi ef þú ert með það við höndina. Það er líka nóg að byrja á stuttri lýsingu — þú þarft ekki að vera með allt tilbúið.

Við förum yfir verkefnið með þér og komum okkur saman um umfang, kostnað og afhendingu áður en vinnan hefst. Að vinnslu lokinni færðu hljóðskrá í sniði sem hentar umsaminni notkun. Þú þarft ekki að kunna skil á tækninni; við leiðbeinum þér.

Hvað viltu láta heyrast?

Skrifaðu okkur eða sendu stutt hljóðskilaboð um það sem þú hefur í huga. Við förum yfir verkefnið með þér og finnum næsta skref.

Ræðum hljóðverkefnið þitt