Valmynd ☰

Um hlustaðu.

Hljóðið á að þjóna samtalinu

Gott samtal á skilið að heyrast vel. hlustaðu. hjálpar fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum að taka upp og ganga frá viðtölum, samtölum og hlaðvarpsþáttum.

Markmiðið er einfalt: að þú getir einbeitt þér að efninu og fengið faglega aðstoð við upptöku, klippingu og hljóðvinnslu. Við förum yfir verkefnið með þér og komum okkur saman um framkvæmd, umfang og afhendingu áður en vinnan hefst.

Ásgeir Páll við hljóðnema

Reynslan á bak við hlustaðu.

Á bak við hlustaðu. stendur Ásgeir Páll Ágústsson, eigandi og framkvæmdastjóri Listsköpunar ehf. Þjónustan byggir á áratuga reynslu hans af útvarpi, upptökum og hljóðvinnslu.

Sú reynsla nýtist bæði við upptökuna og í vinnslu þáttarins: að hlusta eftir því sem skiptir máli, halda samtalinu eðlilegu og skila þætti sem er þægilegt að hlusta á. Persónuleg samskipti og skýrt samkomulag um verkefnið eru hluti af vinnunni.

Tvær leiðir að fullunnum þætti

Þú tekur upp. Við sjáum um rest.
Þú sendir okkur upptökuna. Við sjáum um klippingu, hljóðvinnslu og frágang samkvæmt samkomulagi.

Við komum með stúdíóið til þín.
Við komum með búnaðinn í hentugt rými hjá þér, sjáum um upptökuna og vinnum þáttinn að henni lokinni.

Segðu okkur frá verkefninu þínu

Hvort sem þú ert með tilbúna upptöku eða hugmynd að fyrsta þættinum þarftu ekki að hafa öll svörin áður en þú hefur samband.

Sendu okkur línu á hlustadu@hlustadu.is eða hringdu í 659 2001. Við finnum næstu skref með þér.

hlustaðu. er rekið af Listsköpun ehf.