ÞÍN UPPTAKA
Þú tekur upp.
Við sjáum um rest.
Þú tekur upp samtalið, viðtalið eða þáttinn. Við sjáum um klippingu, hljóðvinnslu og frágang — og skilum honum tilbúnum fyrir hlustendur.
Hvort sem þú tekur upp heima, á vinnustaðnum eða í eigin aðstöðu geturðu sent okkur upptökuna og fengið faglega aðstoð við næstu skref. Þú heldur utan um efnið og við sjáum um hljóðvinnsluna.
Frá upptöku að fullunnum þætti
Við förum yfir upptökuna, klippum samkvæmt þínum áherslum og vinnum hljóðið svo raddirnar heyrist skýrt og hljóðstyrkur sé jafnari. Oft er hægt að draga úr suði og öðrum umhverfishljóðum eftir því sem upptakan gefur færi á.
Ef þátturinn á að innihalda inngang, endi, tónlist eða auglýsingar röðum við því inn samkvæmt samkomulagi. Að lokum færðu faglega unninn þátt sem er tilbúinn til birtingar.
Svona gengur þetta fyrir sig
- Þú sendir okkur upptökuna. Með henni fylgja stuttar upplýsingar um þáttinn og það sem þú vilt láta gera.
- Við samræmum verkefnið. Förum yfir umfangið, óskir þínar og afhendingu áður en vinnslan hefst.
- Við vinnum þáttinn. Sjáum um klippingu, hljóðvinnslu og þann frágang sem við höfum komið okkur saman um.
- Þú færð þáttinn til yfirferðar. Við göngum frá samþykktum lagfæringum áður en lokaútgáfan er afhent.
Óviss um hvort upptakan sé nógu góð?
Þú þarft ekki að kunna hljóðvinnslu til að hafa samband. Sendu okkur stutt sýnishorn og segðu okkur hvað þú ert að hugsa. Við metum hvað er hægt að gera og bendum þér á það sem gæti bætt næstu upptöku.
Segðu okkur frá upptökunni þinni
Sendu okkur línu á hlustadu@hlustadu.is. Segðu okkur hvað þú ert að taka upp, hversu langur þátturinn er og hvort þetta sé einstakt verkefni eða reglulegir þættir.
Segðu okkur frá upptökunni þinni ↗